Í bráðabirgðatölum Hagstofunnar yfir vöruskipti júlímánaðar kom fram að vöruskiptahalli var um 18 milljarðar og hefur sjaldan eða aldrei verið meiri. Minni útflutningur átti mestan hlut að máli en innflutningur reyndist enn vera nokkuð mikill, segir í vefriti Fjármálaráðuneytisins.

Ef innflutningshliðin er skoðuð nánar sést að innflutningur á fjárfestingar-, hrá- og rekstrarvörum heldur áfram af fullum þunga. Hins vegar var mikill samdráttur í bílainnflutningi milli mánaða og hefur innflutningur á bílum ekki verið jafn lítill síðan á vetrarmánuðum 2004-2005, ef marka má bráðabirgðatölur. Einnig dróst innflutningur á hálf-varanlegum neysluuvörum og fatnaði talsvert saman milli mánaða, nokkuð umfram það sem má vænta í júlímánuði, segir ráðuneytið.