Hinn 1. janúar 2018 voru 43.736 innflytjendur á Íslandi eða 12,6% mannfjöldans. Það er fjölgun frá því í fyrra þegar þeir voru 10,6% landsmanna (35.997). Þetta kemur fram á vef Hagstofunnar .

Fjölgun innflytjenda heldur því áfram en frá árinu 2012 hefur þeim fjölgað úr því að vera 8,0% mannfjöldans upp í 12,6%. Annarri kynslóð innflytjenda fjölgaði einnig á milli ára, voru 4.473 í fyrra en 4.861 nú. Samanlagt er fyrsta og önnur kynslóð innflytjenda 13,9% af mannfjöldanum og hefur það hlutfall aldrei verið hærra. Einstaklingum með erlendan bakgrunn, öðrum en innflytjendum, fjölgaði einnig lítillega milli ára, voru 6,8% mannfjöldans í fyrra en 6,9% nú.

Pólverjar fjölmennastir innflytjenda

Eins og síðustu ár eru Pólverjar lang fjölmennasti hópur innflytjenda hér á landi. Hinn 1. janúar síðastliðinn voru 16.970 einstaklingar frá Póllandi eða 38,8% allra innflytjenda. Þar á eftir koma innflytjendur frá Litháen (5,5%) og Filippseyjum (4,0%).

Pólskir karlar eru 42,2% allra karlkyns innflytjenda eða 10.037 af 23.775. Litháískir karlar eru næst fjölmennastir (6,2%) og síðan karlar með uppruna frá Lettlandi (3,5%). Pólskar konur eru 34,7% kvenkyns innflytjenda og næst á eftir þeim eru konur frá Filippseyjum (5,9%), þá konur frá Litháen (4,8%).