Byrjað verður að innheimta sérstakt farþegagjald hjá Faxaflóahöfnum 1. apríl á næsta ári. Gjaldið mun koma til með að nema 185 krónur fyrir hvern farþega í farþegaskipum og hvalaskoðunarskipum sem nota hafnirnar að því er kemur fram í frétt Morgunblaðsins.

Haft er eftir Gísla Gíslasyni, hafnarstjóra Faxaflóahafna, að farþegagjaldið sé miðað við 250 þúsund gest í hvalaskoðun og 140 þúsund gesti í farþegaskipum. Ef miðað er við þær forsendur gæti gjaldið verið um 70 milljónir króna á ári. Á fundi stjórnar Faxaflóahafna voru kynnt vinnugögn varðandi fjárfestingar í farþegaaðstöðu á næstu árum.

Gísli hafnarstjóri mun vinna nánari útfærslu og greina rýmisþörf ferðaþjónustufyrirtækja á athafnasvæði Faxaflóahafna ásamt kostnaðarmati og áfangaskiptingu. Gísli segir að reikna megi með að þegar allt er talið, hús og umhverfi, gæti verið að ræða yfir einn milljarð.