Frá og með 9. ágúst næstkomandi mun Vatnajökulsþjóðgarður innheimta þjónustugjald af ökutækjum sem lagt verður í Skaftafelli. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá þjóðgarðinum og hugbúnaðarfyrirtækinu Computer Vision.

Samkvæmt tilkynningunni koma um 4.500 gestir á um 1.300 bílum í Skaftafell yfir háannatíma sumarsins. Tekjunum af þjónustugjaldinu mun verða varið í að styrkja helstu innviði Skaftafells með því að viðhalda bílastæðum, leggja göngustíga, efla gæslu og auka öryggi gesta.

Verður gjald innheimt á hvert ökutæki sem leggur í Skaftafelli og er gjaldskráin eftir farandi frá miðnætti til miðnættis:

  • 600 kr. - algengustu heimilisbílar, 5 manna eða færri.
  • 900 kr. - stærri fólksbílar og jeppar, 6-9 manna.
  • 1.800 kr. - minni rútur, 10-18 manna
  • 3.600 kr. -  stærri rútur, 19 manna eða fleiri
  • 300 kr. - bifhjól

Í tilkynningunni kemur einnig fram að innheimta verði í höndum hugbúnaðarfyrirtækisins Computer Vision ehf. sem hann, setur upp og rekur sjálfvirka innheimtukerfið myParking í Skaftafelli á vegum Vatnajökulsþjóðgarðs. Samningur þess efnis var undirritaður í kjölfar verðkönnunar Ríkiskaupa.