Við tókum auðvitað dýfu í kreppunni. En endurreisnin er í gangi og menn almennt bjartsýnir. Þetta er reyndar misjafnt á milli landa og heimsálfa. En menn eru almennt að reyna að standa sig og borga,“ segir Sigurbjörn Ársæll Þorbergsson, lögfræðingur á lögmannsstofunni Þorbergsson & Loftsdóttir sem hann rekur með Helgu Loftsdóttur. Samhliða lögmannsstofunni reka þau innheimtuþjónustuna TCM innheimtu. Fyrirtækið innheimtir kröfur íslenskra fyrirtækja erlendis og fyrir erlend fyrirtæki sömuleiðis hér og ytra. Sigurbjörn er nýkominn frá Chile í Suður-Ameríku. Þar var hann á ferð með stórum hópi lögfræðinga á aðalfundi alþjóðlega innheimtufyrirtækisins TCM Group International.
Besti rukkari í heimi
Innheimtufyrirtækið TCM Group International var stofnað árið 1987 og fékk Sigurbjörn umboð fyrir það hér á landi 15 árum síðar. Það var árið 2002. Sigurbjörn segir að sárlega hafi vantað innheimtufyrirtæki hér með sterkar alþjóðlegar tengingar.
„Áður fyrr afskrifuðu menn kröfu frá útlöndum. Ég sá því þörfina fyrir þessa þjónustu hér heima og leitaði markvisst eftir samstarfsaðilum til að þjónusta kröfurnar sem áður voru afskrifaðar. Og þegar ég byrjaði að kynna þetta hjá fjármálastofnunum og opinberum stofnunum þá bara föðmuðu menn mig,“ segir Sigurbjörn. Hann bætir við að TCM Innheimta ehf. hafi frá upphafi lent margoft í fyrsta eða öðru sæti í innbyrðis gæðakönnunum TCM Group. „Ég á safn bikara fyrir að vera besti rukkari í heimi, en það er fyrst og fremst góðu starfsfólki að þakka,“ segir hann.
Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu. Áskrifendur geta nálgast pdf-útgáfu af blaðinu með því að smella á hlekkinn Tölublöð .