FME hefur á um nokkurt skeið unnið að smíði upplýsingakerfis þar sem öll vinnsla og utanumhald útgefenda á innherjalistum verður á rafrænu formi. Kerfið verður tekið í notkun þann 4. desember fyrir aðila sem hafa hlutabréf skráð í Kauphöll Íslands og 1. janúar 2007 fyrir aðila með skráð skuldabréf að því er kemur fram í frétt á heimasíðu FME.

Þar kemur fram að um fjörtíu regluverðir og tölvusérfræðingar frá skráðum félögum og útgefendum hlutabréfa í Kauphöll sóttu námskeið FME um rafvæðingu innherjalista og regluvörslu sem fram fór í húsakynnum FME dag.


Rafvæðing innherjalista er hluti af upplýsingastefnu FME sem miðar að markvissri nýtingu upplýsingatækni í söfnun og úrvinnslu upplýsinga en starfsemi eftirlitsins er dæmigerð þekkingastarfsemi sem byggir á söfnun og greiningu upplýsinga, en FME tekur við rúmlega 3500 skýrslueintökum af ýmsum toga á ári.


Fjögur fyrirtæki hafa að undanförnu tekið þátt í tilraunaverkefni um rafræn skil á innherjalistum, þ.e. Actavis, Dagsbrún, Kaupþing og Össur.  Í frétt FM er haft eftir Guðmundi Thorlacius, lögfræðings á verðbréfasviði FME, að verkefnið hafi gengið vel og markaðsaðilar verið ánægðir með þær nýjungar sem kerfið býður upp á. ?Þegar kerfið verður komið í notkun mun það skila sér í tíma- og vinnusparnaði fyrir útgefendur, auk þess sem allt utanumhald um innherjalistana verður mun einfaldara en áður?, segir Guðmundur.