Toyota á Íslandi hefur innkallað 261 Toyota Proace bifreiðar. Bílarnir eru eru af árgerðunum 2016-18. Þetta kemur fram á vef Neytendastofu.

Ástæða innköllunarinnar er fjölþætt. Í einhverjum tilfellum er mögulegt slit í bremsuslöngu og eldneytisslöngu. Í öðrum tilfellum er mögulegt að handbremsa sé gölluð. Að endingu þarf að athuga bolta sem festa öryggisbelti.

Eigendum bifreiða sem innköllunin nær til verður tilkynnt um það bréfleiðis. Séu eigendur í vafa er þeim bent á að hafa samband við umboðið.