Krónan hefur í samráði við matvælaeftirlit Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, ákveðið að innkalla Gestur Pastasauce Classico pastasósu vegna þess að hún gæti innihaldið glerbrot. Þetta kemur fram á vef Reykjavíkurborgar .

Krukkurnar eru 500 grömm. Viðskiptavinum sem hafa keypt vöruna er bent á að neyta hennar ekki og farga eða skila henni til verslunar þar sem hún var keypt, gegn endurgreiðslu. Hægt er að nálgast nánari upplýsingar um vöruna hér.