Bandaríski súkkulaðiframleiðandinn Mars hefur innkallað súkkulaðistykkin Galaxy, Maltesers Teasers auk Minstrels súkkulaðibitanna vegna mögulegrar hættu á salmonellu.

Talskona fyrirtækisins segir að enginn ætti að láta sér til munns þau súkkulaðistykki sem innkölluð hafa verið.

Segir hún fyrirtækið vinna náið með matvælayfirvöldum og viðskiptavinum til þess að tryggja að allar þær vörur sem hafi verið innkallaðar fari ekki í sölu.