Einar Gautur Steingrímsson hæstaréttarlögmaður segir að ákvörðun Reykjavíkurborgar um að sniðganga varning frá Ísrael ganga gegn ákvæðum stjórnarskrárinnar. Vísir greinir frá þessu.

„Sveitarfélög eru stjórnvöld og þau mega bara framkvæma það sem þeim er falið með lögum. Degi B. Eggertssyni og Reykjavíkurborg hefur ekki verið falið utanríkismál eða það að ákveða viðskiptaþvinganir gegn erlendum ríkjum. Þannig að þeir eru komnir langt út fyrir hlutverk sitt sem sveitarfélag. Auk þess gæti ekki einu sinni ríkisstjórn tekið svona ákvörðun, það þyrfti heimild frá Alþingi,“ segir Einar Gautur.

Hann segir að borgin geti ekki skýlt sér á bakvið aðgerðir ísraelskra stjórnvalda eða ástandið í Mið-Austurlöndum. Borgin hafi hreinlega ekki heimild til að mismuna fólki í viðskiptum.

„Þetta er í andstöðu við stjórnarskrána. Þetta er jafnmikið lögbrot eins og að neita viðskiptum við rauðhærða og það þýðir ekkert að skírskota til meints framferðis Ísraela. Ísland er með stjórnmálasamband við þetta ríki og það þýðir ekkert fyrir borgina að halda að þeir séu með einu réttu skoðunina á flóknum málefnum Austurlanda og það réttlæti svona ákvörðun. Þetta er öldungis sambærilegt við það að mismuna fólki eftir þyngd eða litarhætti,“ segir hann í samtali við Vísi.