Íslandsbanki hf. hefur yfirtekið skuldbindingar Straums-Burðaráss fjárfestingabanka hf. (Straumur) vegna innlána í höfuðstöðvum bankans á Íslandi.

Þetta kemur fram í tilkynningu til Kauphallarinnar en undanskilin eru innlán sem stofnað var til í tengslum við uppgjör eldri skulda fyrir gjalddaga.

Í tilkynningunni kemur fram að sem endurgjald fyrir hinar yfirteknu innlánsskuldbindingar hefur Straumur gefið út skuldabréf með veði í eignum bankans.

Þá kemur einnig fram að Straumur hefur tryggt sér aðgang að nægu lausu fé til að standa við skuldbindingar gagnvart eigendum innlána í útibúi bankans í Danmörku; þau innlán verða greidd á réttum gjalddögum. Með þessari ráðstöfun er óvissu um hagsmuni innlánseigenda eytt og jafnræðis gætt.