Þeir hluthafar í Alfesca sem ekki samþykktu yfirtökutilboð Lur Berri Iceland og eru ekki í hópi samstarfsaðila um stjórn og rekstur Alfesca skulu, frá og með í næstu viku, sæta innlausn Lur Berri Iceland á hlutum sínum.

Þetta er heimilt samkvæmt lögum um um verðbréfaviðskipti en það er stjórn Alfesca sem tekur ákvörðun um slíkt ásamt Lur Berri Iceland.

Tilkynnt var um innlausnina í kjölfar uppgjörs á yfirtökutilboði Lur Berri Iceland í hluti í Alfesca. Eftir yfirtökuna munu Lur Berri Iceland og samstarfsaðilar eiga samtals 91,34% af heildarhlutafé og fara með 91,87% atkvæðisréttar í Alfesca.

Í tilkynningu til Kauphallarinnar í dag kemur fram að innlausnarverðið er 4,5 kr. fyrir hvern hlut í Alfesca. Greitt verður fyrir hlutina með reiðufé.

Þar er um að ræða sama verð og endurgjald og Lur Berri Iceland bauð hluthöfum Alfesca í yfirtökutilboði frá 25. júní 2009. Gert er ráð fyrir að innlausnartímabil hefjist 26. ágúst 2009, standi í fjórar vikur og greiðsla til hluthafa verði innt af hendi 29. september 2009.