Sjúkrahúsið á Akureyri og Þula – Norrænt hugvit ehf. hafa undirritað samning um kaup og innleiðingu sjúkrahússins á hugbúnaðarlausninni Alfa frá Þulu. Alfa er sérhæfður hugbúnaður sem styður við verkferla tengda lyfjaumsýslu á heilbrigðisstofnunum. Með Alfa er hægt að auka yfirsýn og bæta stórlega verkferla sem áður hafa byggt á pappírsskráningum.  Þetta kemur fram í fréttatilkynningu,

„Tilgangur Sjúkrahússins á Akureyri með innleiðingu á Alfa er aukið öryggi, tímasparnaður og rekstrarleg hagræðing. Alfa-lausnin verður samþætt við birgða- og fjárhagskerfi sjúkrahússins ásamt fyrirmælakerfi lyfja,“ segir þar.

„Alfa hefur verið í notkun á fjölda sjúkrahúsa í Noregi á síðustu árum ásamt því sem hún hefur þjónað Öldrunarheimilum Akureyrarbæjar og Lyfjaveri í rúmt ár. Sjúkrahúsið á Akureyri er hins vegar fyrsta sjúkrahúsið á Íslandi til að taka Alfa í notkun og það er mjög ánægjulegt,“ er haft eftir Garðari Má Birgissyni, yfirmanni viðskiptaþróunar hjá Þulu ehf.

Taka í notkun klinískan lyfjasérfræðigrunn

„Samhliða innleiðingu Alfa mun Sjúkrahúsið á Akureyri taka í notkun klínískan lyfjasérfræðigrunn sem öll lyfjatengd hugbúnaðarkerfi sjúkrahússins munu byggja á. Um er að ræða yfirgripsmikinn gagnagrunn sem inniheldur ítarlegar upplýsingar um flókna eiginleika lyfja og styður heilbrigðisstarfsmenn í klínískri ákvarðanatöku.

Þetta er í fyrsta skipti sem slíkur grunnur verður notaður á Íslandi, en Þula ehf. hefur í samstarfi við norsku lyfjastofnunina haft veg og vanda af staðfærslu grunnsins fyrir íslenskar aðstæður. Í Noregi heitir grunnurinn FEST en íslenskt nafn hefur ekki verið valið enn sem komið er. Staðfærsla grunnsins fyrir íslenskar aðstæður var styrkt af Uppbyggingarsjóði Norðurlands eystra,“ er enn fremur tekið fram í fréttatilkynningunni.