Rannsóknasetur verslunarinnar hefur gefið út skýrsluna Íslensk netverslun – áhrif stafrænnar tækni og alþjóðlegrar samkeppni þar sem fjallað er um áhrif stafrænnar tækni á verslun og verslunarhegðun Íslendinga. Margir telja að aldrei áður hafi orðið jafn stórstígar breytingar verslun og verslunarmynstri eins og nú eiga sér stað.

Skýrslunni er skipt í þrjá hluta. Í fyrsta hluta er farið yfir áhrif og afleiðingar stafrænnar tækni á verslun almennt og með áherslu á íslenska verslun. Í öðrum hluta eru birtar niðurstöður þriggja rannsókna á íslenskri netverslun. Þar er birt ítarleg samantekt á umfangi netverslunar hér á landi og netverslunar frá útlöndum – tölur sem ekki hafa verið áður birtar. Einnig eru kynntar niðurstöður úr viðamikilli skoðanakönnun á netverslunarhegðun Íslendinga. Þá eru niðurstöður úr viðtalskönnun meðal stjórnenda stærstu íslensku netverslana um stöðu og horfur. Í þriðja hluta skýrslunnar eru settar fram ályktanir og tillögur byggðar á þeim rannsóknum sem kynntar eru í skýrslunni.

Skýrslan sýnir meðal annars fram á að netverslun kallar á miklar breytingar í því hvernig fólk hugsar um hugtakið verslun. Fjallað er um áhrif samkeppni frá stórum alþjóðlegum netverslun á íslenska verslun. Fjallað er um greiðslumiðlun framtíðarinnar, áhrif deilihagkerfisins og mikilvægi endurskipulagningar í vörudreifingu. Einnig er fjallað um mikilvægi nýsköpunar í verslun. Þá fjallar skýrslan um væntanlegar breytingar á framtíðarstörf í verslun og nýjar menntunarþarfir verslunarfólks.

Með netverslun eru landamæri orðin óskýrari og setur það þrýsting á íslensk fyrirtæki og stjórnvöld til þess að bregðast við.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið, Samtök verslunar og þjónustu og VR styrktu útgáfu skýrslunnar. Höfundur hennar er Emil B. Karlsson.

Í skýrslunni má meðal annars finna:

  • Innlend netverslun árið 2017 var 8,8 milljarðar en erlend netverslun mældist lægri eða 4,3 milljarðar. Líklega er um vanmat að ræða á erlendu netversluninni vegna vara sem sleppa framhjá tolli.
  • 88% svarenda versluðu á netinu á síðastliðna 12 mánuði.
  • Íbúar á landsbyggðinni eru líklegri til þess að versla við innlendar netverslanir en höfuðborgarbúar.
  • Verðlag er helsti áhrifaþátturinn í kaupákvörðun á netinu.
  • Helstu áskoranir netverslunar, bæði hér á landi og erlendis, eru afhendingarkostir vara.
  • Hár sendingakostnaður er talinn hamla íslenskri netverslun.
  • Verslun hefur og mun taka miklum breytingum. Netverslun kallar á breytta hugmyndafræði um hvað verslun er og hvernig hún birtist.
  • Áskoranir verslana birtast einnig í breyttri menntunarþörf starfsfólks. En starfsfólk netverslana er sérhæfðara en starfsfólk hefðbundinna verslana.