Seðlabankinn mun selja aflandskrónur þær sem keyptar voru í gjaldeyrisuppboði nýlega til innlendra aðila sem eiga gjaldeyri og vilja innleysa hagnað af honum. Þetta kom fram í svari Más Guðmundssonar, seðlabankastjóra, við fyrirspurn á blaðamannafundi bankans. Hann sagðist ekki geta velt vöngum yfir því hvaða áhrif niðurstaða útboðsins myndi hafa á önnur útboð.