Frá nóvember 2007 hefur vísitala framleiðsluverðs lækkað um 4,6%, verðvísitala sjávarafurða hefur lækkað um 0,8% og afurðir stóriðju um 14,3%. Matvælaverð hefur hækkað um 5,2%.

Í samantekt Hagstofunnar kemur fram að vísitala framleiðsluverðs í nóvember 2007 var 117,0 stig (4. fjórðungur 2005 = 100) og hækkaði um 1,0% frá fyrri mánuði. Vísitala framleiðsluverðs fyrir sjávarafurðir var 128,6 stig, sem er hækkun um 2,7% (vísitöluáhrif 1,0%) frá fyrri mánuði, og vísitala fyrir stóriðju var 126,5 stig, hækkaði um 2,3% (0,5%). Vísitalan fyrir matvæli hækkaði um 1,0% milli mánaða (0,2%) en vísitala fyrir annan iðnað lækkaði um 2,4% frá október (-0,6%).

Vísitala framleiðsluverðs fyrir vörur sem framleiddar voru og seldar innanlands lækkaði um 1,1% (-0,4%) milli mánaða en fyrir útfluttar afurðir hækkaði hún um 2,3% (1,4%).