Heildsalan Innnes ehf., sem rekur heildverslun með matvörur til sölu í verslunum og til stóreldhúsa, hagnaðist um 465 milljónir króna samanborið við 174 milljónir króna árið áður. Er því um að ræða tæplega 170% hagnaðaraukningu milli ára.

Rekstrartekjur fyrirtækisins jukust að sama skapi úr 8.933 millj­ ónum árið 2015 í 9.413 millj­ ónir árið 2016. Eigið fé félagsins jókst einnig á tímabilinu úr 1.211 milljónum í 1.675 milljónir króna.