Starfsmenn innan Innovits-hagkerfisins, það er starfsmenn þeirra fyrirtækja sem hafa stigið sín fyrstu skref í frumkvöðlakeppni um Gulleggið á undanförnum árum eða nýtt sér ráðgjöf og stuðning Innovit, eru nú 168 talsins. Starfsmannafjöldi jókst um 63% milli ára og starfa starfsmennirnir 168 hjá alls 38 sprotafyrirtækjum. Í tilkynningu frá Innovit segir að fyrirtækin eru öll með virkan rekstur, en til voðbótar eru fjölmargir frumkvöðlar að undirbúa stofnun sinna fyrirtækja.

„Velta Innovit hagkerfisins eykst einnig verulega á milli ára og fór í fyrsta sinn yfir hálfan milljarð króna árið 2010. Þá gera framkvæmdastjórar fyrirtækjanna ráð fyrir að samanlögð heildarvelta verði yfir 1100 milljónir króna á þessu ári. Áhugi fjárfesta rennir styrkum stoðum undir að þessi hraði vöxtur verði að veruleika á árinu, en samanlagt hafa einkaaðilar og fagfjárfestingarsjóðir fjárfest í Innovit hagkerfinu fyrir 972 milljónir króna,“ segir í tilkynningu.

Helstu niðurstöður rannsóknarinnar eru:

§  Alls starfa 168 einstaklingar innan Innovit-hagkerfisins í 117 stöðugildum

§  Velta Innovit hagkerfisins var 535 milljónir króna árið 2010

§  Áætluð velta Innovit hagkerfisins er yfir 1,1 milljarður króna árið 2011

§  Fjárfestar hafa fjárfest fyrir 972 milljónir króna í Innovit-hagkerfinu

§  Sölutekjur fyrirtækja innan Innovit-hagkerfisins voru 312 milljónir króna

§  Fyrirtæki innan Innovit-hagkerfisins hafa fengið 282 milljónir króna í styrki

Andri Heiðar Kristinsson, stofnandi og framkvæmdastjóri Innovit, segir í tilkynninu: “Við erum afskaplega stolt af árangri þessara glæsilegu fyrirtækja innan Innovit-hagkerfisins og vil ég sérstaklega vekja athygli á því kraftmikla athafnafólki sem hefur stofnað þessi fyrirtæki og þar með skapað sjálfu sér og öðrum atvinnu. Ný störf verða ekki sköpuð af hinu opinbera með einni handbendingu eins og stundum er látið í veðri vaka, heldur af athafnasömum og dugmiklum einstaklingum með góðar viðskiptahugmyndir. Hlutverk hins opinbera er að skapa þessum einstaklingum góða umgjörð fyrir rekstur sinna fyrirtækja. Ég hef orðið var við töluverðan óróleika hjá stjórnenedum nýrra fyrirtækja vegna þessa og því er það mikið áhyggjuefni að kynna þessar jákvæðu niðurstöður í skugga áframhaldandi gjaldeyrishafta og síhækkandi skatta.”