Landsbankinn hefur staðfest vottun samkvæmt ISO 27001 sem tekur sérstaklega fyrir upplýsingaöryggi og meðhöndlun trúnaðarupplýsinga.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landsbankanum en vottunin nær til allrar starfsemi bankans og tekur m.a. á rekstri upplýsingakerfa, öryggisvitund starfsmanna, umgengni um skjalageymslur og aðgengi annarra en starfsmanna í starfstöðvar bankans.

Það var alþjóðlega vottunarfyrirtækið BSI sem tók út starfsemi bankans.

Í tilkynningunni kemur fram að Landsbankinn hlaut fyrst vottun samkvæmt ISO 27001 árið 2007. Vottun samkvæmt þessum staðli felur í sér alþjóðlega viðurkenndan gæðastimpil á meðferð upplýsinga. Óháður eftirlitsaðili tekur út þá starfsemi sem á í hlut einu sinni á ári og vottar að því búnu um hvort unnið er eftir skilyrðum staðalsins.

„Þetta er gæðastimpill á verkferlum bankans og staðfesting á faglegum vinnubrögðum starfsmanna við meðferð upplýsinga sem lúta að viðskiptavinum bankans,” sagði Guðmundur Guðmundsson, framkvæmdastjóri Rekstrarsviðs Landsbankans í tilkynningunni.