samfélagsmiðillinn Instagram er 35 milljarða dala virði, andvirði um 4.400 milljarða króna, samkvæmt verðmati bankans Citigroup. Þetta þýðir að Instagram er meira virði en Twitter, sem er 23 milljarða króna virði.

Facebook keypti Instagram vorið 2012 fyrir einn milljarð dala og voru notendur síðunnar þá um 30 milljónir talsins. Í september 2013 voru virkir notendur orðnir 150 milljónir.

Undanfarna níu mánuði hefur notendum fjölgað um 50%, en notendum fækkaði reyndar um nokkrar milljónir í vikunni þegar Instagram eyddi fjölda óvirkra notenda og reikninga sem ekki voru raunverulegar persónur á bak við.