Apple mun setja nýjan Iphone 6 í sölu í ágúst, mánuði áður en gert hafði verið ráð fyrir. Þetta kemur fram í tævanska dagblaðinu  Economic Daily News. Reuter greinir einnig frá þessu.

Nýr sími verður boðinn í stærri útgáfu Iphone 5s. Bæði verður hann 4,7 tommur og 5,5 eða 5,6 tommur, en stærri útgáfan fer í sölu í september.

Dagblaðið segir að 80 milljónir Iphone 6 síma verði framleiddir í ár.