Veira sem valdið getur sjúkdómnum brisdrepi í fiskum hefur greinst í laxi úr sjókví Laxa fiskeldis ehf. í Reyðarfirði. Þetta er í fyrsta sinn sem IPN-veiran greinist í laxi á Íslandi, en áður hefur hún verið staðfest í lúðu árið 1999.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Matvælastofnun. Þar segir jafnframt orðrétt:

Þó svo veiran hafi greinst hefur sjúkdómurinn brisdrep (e. Infectious Pancreatic Necrosis - IPN) ekki komið upp í löxunum og hefur enn ekki komið upp á Íslandi. Brisdrep getur valdið tjóni í eldi, einkum í ferskvatnseldi á seiðum. Afföll eru algengust í eldi smáseiða í ferskvatni og í stálpuðum seiðum sem flutt eru smituð úr seiðastöð í sjókvíar. IPN-veiran hefur enn ekki greinst í ferskvatnseldi á Íslandi, en umfangsmikil vöktun á veirunni hófst í klak- og seiðastöðvum árið 1985, jafnt í eldisfiski sem villtum laxi.

IPN-veiran uppgötvaðist í kjölfar sýnatöku við reglubundið innra eftirlit hjá Löxum fiskeldi ehf. í Reyðarfirði. Laxinn sem veiran greindist í er heilbrigður og ástand laxa í kvíum almennt gott.

Tilraunastöð HÍ í meinafræði að Keldum vinnur nú að nánari staðfestingu og skilgreiningu á arfgerð veirunnar í samvinnu við rannsóknastofu Evrópusambandsins í veirusjúkdómum lagardýra í Danmörku, en meinvirkni veirunnar er mismunandi milli arfgerða.

Veiran er útbreidd í vatna- og sjávardýrum á heimsvísu, bæði í villtu umhverfi og eldi. Þekkt er að eldri fiskur í sjó geti tekið smit úr umhverfi án þess að sýna sjúkdómseinkenni. Leiða má líkur að því að veiran sem nú hefur greinst hafi borist í laxinn úr umhverfi. Veiran er skaðlaus mönnum og berst ekki með fiskafurðum.

Í kjölfar þessarar greiningar er staða Íslands nú sambærileg stöðu Ástralíu og Nýja-Sjálands. Þar hefur veiran einungis verið greind í fiski í sjó en aldrei í ferskvatni. Bæði þessi lönd eru alþjóðlega skilgreind sem laus við brisdrep ("IPN-free country") eins og Ísland.

Greining veirunnar nú ítrekar mikilvægi vöktunar og smitvarna til að viðhalda góðri sjúkdómastöðu hérlendis og fyrirbyggja að sjúkdómurinn brisdrep komi upp í eldi, einkum í klak- og seiðastöðvum. Matvælastofnun hefur í varúðarskyni sett dreifingarbann á starfsstöð fyrirtækisins að Bjargi í Reyðarfirði sem mun gilda þar til slátrað hefur verið úr sjókvíunum.