Evrópska tímaritið IR Magazine hefur tilnefnt Bakkavör, Kaupþing og Landsbankann sem þau íslensku fyrirtæki sem hafa staðið sig best í fjárfestatengslum en veitt eru verðlaun fyrir hvert land fyrir sig.

Í hópi einstaklinga eru eftirfarandi aðilar tilnefndir:

Hildur Árnadóttir, fjármálastjóri Bakkavarar.

Sigurjón Þ. Árnason og Halldór Kristjánsson, bankastjórar Landsbankans

og Jón Sigurðsson, forstjóri Össurar ásamt Hjörleifi Pálssyni, fjármálastjóra.

Ekkert íslenskt félag er þó á lista yfir verðlaun sem veitt eru fyrir Norðurlöndin sem heild.

Hér má sjá listann í heild.