Í flokknum yfir vinsælustu fréttatengdu myndskeiðin á Youtube á þessu ári er myndband Wikileaks af árás Bandaríkjahers á óbreytta borgara í Írak, sem sýnt var fyrst í fréttum Sjónvarpsins, í efsta sæti. Hefur myndskeiðið verið skoðað tæplega tíu milljón sinnum á Youtube. Vinnsla á myndbandinu fór að stórum hluta fram hér á landi og vakti mikla athygli þegar það var sýnt í apríl á þessu ári. Meðal þeirra sem féllu voru tveir blaðamenn.

Hér má sjá lista yfir tíu fréttatengdu myndskeiðin sem fengu mesta áhorfið á árinu.