Íris Róbertsdóttir, grunnskólakennari í Vestmannaeyjum, hefur ákveðið að gefa kost á sér í 4. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi sem ákveðið hefur verið laugardaginn 14. mars næstkomandi.

Í tilkynningu frá Írisi kemur fram að margir málsmetandi einstaklingar í Sjálfstæðisflokknum - bæði foringjar og fótgönguliðar - hafa lýst þeirri skoðun að það sé nauðsynlegt fyrir flokkinn að mikil endurnýjun eigi sér stað á framboðslistum hans til Alþingiskosninganna 25. apríl næstkomandi.

Það sé ekki vegna þess að núverandi þingmenn hafi endilega staðið sig illa heldur sé flokkurinn marinn og móður eftir hremmingarnar í þjóðfélaginu síðustu misseri. Við þær aðstæður sé nauðsynlegt að ákveðin endurnýjun verði í framvarðasveit flokksins og hann blási til nýrrar sóknar, ferskur og framsækinn, í kosningum í vor.

Þessum sjónarmiðum segist Íris vera sammála og gefur því kost á sér nú.

„Við þurfum að vinna okkur hratt og örugglega út úr þeim vanda sem við höfum komið okkur í - og læra af mistökunum,“ segir Íris í tilkynningu. Þ

„að á að auka okkur bjartsýni að þessi vandi er fyrst og fremst í yfirbyggingunni og það er auðveldara að fást við slíkt ef undirstöðurnar eru í lagi. Við erum vonandi búin að læra það í eitt skipti fyrir öll að þjóðin lifir ekki á því einu að menn skiptist á pappírum í fjármálafyrirtækjum í Reykjavík.“

Hún segir margar helstu undirstöðurnar fyrir framtíðar hagsæld á Íslandi er að finna í ríkum mæli í Suðurkjördæmi og nefnir sem dæmi:    - öfluga sjávarútvegsbæi þar sem mörg sterkustu fyrirtæki landsins í þeirri grein eru staðsett.

- blómlegustu landbúnaðarhéruð landsins í námunda við stærsta markaðssvæðið.

- ómælda orku í vatnsföllum og jarðhita sem getur orðið grundvöllur fyrir  margþættri iðnaðaruppbyggingu, þ.m.t. stóriðju.

- ótæmandi möguleika í þjónustu við ferðamenn - ekki síst erlenda - sem hafa nánast allir sinn fyrsta og síðasta viðkomustað í okkar kjördæmi. Hér gegna bættar samgöngur lykilhlutverki, m.a. tvöföldun Suðurlandsvegar milli Reykjavíkur og Selfoss og stórbættar samgöngur á sjó milli lands og Eyja með tilkomu Landeyjahafnar.

- vannýttar auðlindir á borð við hreint drykkjarvatn, sem í útflutningi njóta góðs af nálægð við góða hafnaraðstöðu.

„Allt þetta felur í sér fyrirheit um bjarta framtíð fyrir okkar kjördæmi og raunar landið allt. Það er mín sannfæring að þessi tækifæri verði best nýtt með því að láta grunngildin í stefnu Sjálfstæðisflokksins ráða för: frelsi einstaklingsins í tryggu samfélagsumhverfi,“ segir Íris.

Íris er 37 ára grunnskólakennari og kennir í Grunnskóla Vestmannaeyja. Hún útskrifaðist frá Kennaraháskóla Íslands árið 2004 og hlaut Íslensku menntaverðlaunin árið 2006.

Íris er formaður Sjálfstæðisfélags Vestmannaeyja og í stjórn fulltrúaráðs Sjálfstæðisfélaganna í Vestmannaeyjum og kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi. Hún situr í Menningarráði Suðurlands og Skólanefnd Framhaldsskólans í Vestmannaeyjum.

Íris er gift Eysteini Gunnarsyni sjómanni og eiga þau tvö börn, Róbert Aron níu ára og Júníu tveggja ára.