Ísafoldarprentsmiðja og Ferðamálaráð hafa skrifað undir samning um prentun á kynningarbækling um Ísland sem Ferðamálaráð gefur út árlega. Hann er prentaður á 11 tungumálum og upplagið er eitt það mesta sem prentað er hér á landi.

Þetta er fjórða árið í röð sem Ísafoldarprentsmiðja prentar þennan bækling fyrir Ferðamálaráð.