Skrifað hefur verið undir rammasamning við Ísafoldarprentsmiðju og Litlaprent um prentun fyrir Ríkisskattstjóra. Það voru Ríkiskaup sem buðu kaupin út fyrir hönd áskrifenda í rammasamningakerfi Ríkiskaupa. Óskað var eftir tilboðum í þrjá flokka. Samið var við Litlaprent um 1. flokk sem eru framtalseyðublöðin, áritunarblaðið og framhaldsblað rekstraraðila. Ísafoldarprentsmiðja mun sjá um að prenta ársskýrslu RSK og allar leiðbeiningar með framtalseyðublöðum einstaklinga.

Samningarnir gilda til eins árs í senn með heimildum til framlengingar þrisvar sinnum um eitt ár í senn.