ÍSAGA ehf. mun í mánuðinum hefja framkvæmdir við nýja súrefnis- og köfnunarefnisverksmiðju á iðnaðarsvæði við Vogabraut í Vogum á Vatnsleysisströnd. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu. Áætlaður kostnaður við verksmiðjuna nemur 2,5 milljörðum króna.

Verksmiðjan mun framleiða súrefni og köfnunarefni úr andrúmsloftinu. Gert er ráð fyrir að verksmiðjunni verði fjarstýrt af starfsmönnum ÍSAGA á sama hátt og gert er í dag. Fyrirtækið rekur um þessar mundir verksmiðjur við Breiðhöfða og Hæðarenda.

ÍSAGA ehf. var stofnað árið 1919 og er í eigu Linde Group sem er stærsta gasfyrirtæki heims og er með starfsemi í yfir 100 löndum. Núverandi verksmiðja ÍSAGA í Reykjavík vinnur um 800 rúmmetra á klukkustund af súrefni og köfnunarefni. Nýja verksmiðjan á samkvæmt tilkynningunni að afkasta um 30% meira.