Í janúar 2020 breytir ÍSAGA nafni fyrirtækisins í Linde Gas. ÍSAGA sem er hluti af AGA hefur verið hluti af Linde Group frá árinu 2000 og tilheyrir Norður-Evrópusvæðinu, sem er Norðurlöndin og Eystrasaltsríkin.

„Við höfum ákveðið að breyta merki fyrirtækisins úr AGA í Linde að því er varðar starfsemi okkar á Norðurlöndunum og í Eystrasaltslöndunum“, segir Olof Källgren, sölu- og markaðsstjóri AGA í Norður Evrópu.

„Eftir samrunan við Praxair, fyrr á þessu ári, er Linde í fararbroddi á heimsvísu á sviði iðnaðar- og lyfjagass, með yfir 80.000 starfsmenn og viðskiptavini í meira en 100 löndum.“

AGA verður áfram notað sem vörumerki á vörur fyrirtækisins fyrir kolsýrt vatn, própan og logsuðubúnað.

„Við berum mikla virðingu fyrir þeim gildum sem vörumerki og löng hefð AGA stendur fyrir. Þess vegna notum við AGA áfram sem vörumerki fyrir vörur okkar á sviði kolsýrðs vatns, própans og logsuðubúnaðar. Þessar vörur hafa sterka stöðu bæði hjá neytendum og viðskiptavinum í iðnaði og eru þekktar fyrir gæði, áreiðanleika og hátt þjónustustig“, segir Olof Källgren.

Breytingin á heiti fyrirtækisins tekur formlega gildi í janúar 2020. Búnaður og aðrar eignir fyrirtækisins, svo sem tankbílar, þjónustubílar, vinnusvæði, tankar viðskiptavina, skrifstofur og fleira, fá nýtt útlit á árinu.