Samkomulag hefur náðst milli hluthafa ÍSAM ehf. annars vegar, og hluthafa Ó. Johnson & Kaaber ehf. og Sælkeradreifingar ehf. hins vegar, um að sameina heildsölurekstur fyrirtækjanna í nýju félagi. Samruninn er háður samþykki Samkeppniseftirlitsins.

Fyrirhuguð sameining nær þó eingöngu til heildsöluhluta fyrirtækjanna þriggja en ekki framleiðslufyrirtækja á þeirra vegum, það er Nýja kaffibrennslan, Kaffitár, Myllan, Ora, Kexverksmiðjan Frón og Kexsmiðjan, sem verða áfram í eigu núverandi hluthafa.

Kaffitár ekki í sameinuðu félagi

Ó. Johnson & Kaaber er meðal elstu starfandi fyrirtækja landsins og fagnar 115 ára afmæli á þessu ári. Frá stofnun þess árið 1906 hefur ÓJ&K höndlað með margs konar innfluttan varning, einkum þó matvæli og hreinlætisvörur. Árið 2006 keypti ÓJ&K heildsöluna Sælkeradreifingu sem sérhæfir sig í innflutningi og sölu til stóreldhúsa, s.s. veitingahúsa, mötuneyta og hótela.

Kaffibrennsla ÓJ&K, stofnuð 1924, hefur frá árinu 2000 starfað undir nafni Nýju kaffibrennslunnar sem árið 2018 keypti framleiðslu og rekstur Kaffitárs. Starfsmenn ÓJ&K og SD eru um 70 talsins. Nýja kaffibrennslan og Kaffitár verða ekki hluti af fyrirhugaðri sameiningu og verða áfram í eigu núverandi hluthafa.

Myllan, Ora og kexversksmiðjur ekki með í sameiningunni

ÍSAM var stofnað í apríl 1964 og hefur frá upphafi lagt höfuðáherslu á að flytja inn og markaðssetja þekkt vörumerki í náinni samvinnu við framleiðendur en fyrirtækið var áður þekkt sem Íslensk-Ameríska.

Upp úr aldamótum 2000 bættust við samstæðuna framleiðslufyrirtækin Myllan, Ora, Frón og Kexsmiðjan á Akureyri. Starfsmenn heildsöluhluta ÍSAM eru um 60 talsins. Framleiðslueiningarnar verða áfram í eigu núverandi hluthafa.

Fjármálaráðgjöf Deloitte hefur umsjón með fyrirhugaðri sameiningu ásamt lögmannsstofunum LOGOS og Juris en í tilkynningu um kaupin segir að aðilar samkomulagsins muni ekki tjá sig um fyrirhugaða sameiningu á meðan hún sé til skoðunar hjá Samkeppniseftirlitinu.