Isavia hefur sent frá sér tilkynningu vegna dóms Hæstaréttar í máli ALC gegn Isavia. Dómurinn var kveðinn upp fyrr í dag en með honum var úrskurður Landsréttar ómerktur og málinu vísað á ný til réttarins til löglegrar meðferðar.

Líkt og kunnugt er varðar málið aðfararbeiðni ALC til að fá afhenta vél sína sem kyrrsett hefur verið á Keflavíkurflugvelli, af Isavia, til tryggingar tveggja milljarða skuld Wow við flugrekandann. Umrædda vél hafði Wow á leigu hjá ALC.

Í yfirlýsingunni segir Isavia meðal annars að „rétturinn sé fyrst og fremst að bregðast við þeirri staðreynd að ALC kærði ekki úrskurð héraðsdóms til Landsréttar og meðferð málsins fyrir Landsrétti eftir það.“

„Sú staðreynd að ALC kærði ekki úrskurð héraðsdóms til Landsréttar hafi falið í sér yfirlýsingu ALC um að félagið væri sammála kröfum og röksemdum Isavia. Við þær aðstæður bar Landsrétti að verða við óbreyttum kröfum Isavia í málinu og hafna þegar af þeirri ástæðu innsetningu, eins og fram kemur í niðurstöðu Hæstaréttar,“ segir jafnframt í yfirlýsingu Isavia.

Þá segir að Isavia sé þeirrar skoðunar að dómur Hæstaréttar staðfesti efnislega afstöðu Landsréttar til túlkunar á beitingu 136. gr. laga um loftferðir. Málinu hafi nú verið vísað aftur til Landsréttar. Vænta megi að Landsréttur taki það til meðferðar og staðfesti kröfur Isavia eins og þær lágu fyrir Landsrétti, auk ákvörðunar um málskostnað.

Yfirlýsingu Isavia má sjá í heild hér að neðan:

Nú liggur niðurstaða Hæstaréttar í innsetningarmáli ALC fyrir og er niðurstaðan sú að Isavia var heimilt að kyrrsetja flugvél ALC fyrir skuldum WOW air.

Með niðurstöðu Hæstaréttar í innsetningarmáli vegna flugvélarinnar TF-GPA, í eigu flugvélaleigunnar ALC, telur Isavia að rétturinn sé fyrst og fremst að bregðast við þeirri staðreynd að ALC kærði ekki úrskurð héraðsdóms til Landsréttar og meðferð málsins fyrir Landsrétti eftir það.

Sú staðreynd að ALC kærði ekki úrskurð héraðsdóms til Landsréttar hafi falið í sér yfirlýsingu ALC um að félagið væri sammála kröfum og röksemdum Isavia. Við þær aðstæður bar Landsrétti að verða við óbreyttum kröfum Isavia í málinu og hafna þegar af þeirri ástæðu innsetningu, eins og fram kemur í niðurstöðu Hæstaréttar.

Isavia er þeirrar skoðunar að dómur Hæstaréttar staðfesti efnislega afstöðu Landsréttar til túlkunar á beitingu 136. gr. laga um loftferðir. Málinu hefur nú verið vísað aftur til Landsréttar. Vænta má að Landsréttur taki það til meðferðar og staðfestir kröfur Isavia eins og þær lágu fyrir Landsrétti, auk ákvörðunar um málskostnað.

Flugvélin TF-GPA er áfram kyrrsett þar til niðurstaða fæst í málið. Í millitíðinni vill Isavia ítreka að eigandi vélarinnar getur fengið hana afhenta ef skuld WOW air er greidd eða ef gild trygging er lögð fyrir henni.