Isavia gerir ráð fyrir því að bílastæði við Keflavíkurflugvöll muni fyllast um páskana líkt og gerðist á sama tíma fyrir ári síðan að því er segir í fréttatilkynningu.
Vinsælt er meðal Íslendinga að leggja land undir fót í páskafríinu og hvetur Isavia þá farþega til að bóka bílastæði við flugvöllinn fyrir brottför til að forðast það að fá ekki bílastæði við komu.
Nýtt bókunarkerfi fyrir bílastæði á vefsíðu Keflavíkurflugvallar tryggir farþegum stæði um páskana og sömuleiðis er hægt að fá bílastæðin á betri kjörum en þegar greitt er við hlið. Bókunarkerfinu var hleypt af stokkunum í febrúar og er liður í því að koma í veg fyrir að stæðin fyllist á álagstímum á flugvellinum.
Lægsta sólarhringsverð yfir páskana er nú 990 krónur og því fyrr sem bókað er, því lægra verð fæst. Verð á sólarhring fyrir þá sem ekki bóka stæði og greiða við hlið er 1.750 krónur.
Hér má lesa frekari fréttir um bílastæðamál og rútuferðir á Keflavíkurflugvöll:
- 8. febrúar 2018 - Rannsaka gjaldtöku af bílastæðum
- 2. febrúar 2018 - Isavia hækkar bílastæðagjöld
- 17. janúar 2018 - Flugrútan hækkar um allt að fjórðung
- 18. desember 2017 - „Hafa reynt að reka okkur frá“