Isavia hagnaðist um 1,57 milljarða króna á fyrstu sex mánuðum ársins samanborið við 1,48 milljarða króna á sama tímabili árið á undan og hækkaði því um 89 milljónir króna milli ára.

Rekstrarafkoma af samstæðu Isavia fyrir fjármagnsliði og skatta á fyrri helmingi ársins 2018 var jákvæð um 2.186 milljónir króna og jókst um 9% á milli ára. Rekstrartekjur námu 19.015 milljónum króna sem er 2.099 milljóna króna aukning samanborið við sama tímabil á síðasta ári eða 12%.

Eigið fé í lok tímabilsins var 32,6 milljarðar króna og eiginfjárhlutfallið var 43%.

„Afkoma Isavia var í meginatriðum í takt við áætlanir félagsins,“ segir Björn Óli Hauksson, forstjóri Isavia.

„Ferðamönnum sem fóru um Keflavíkurflugvöll fyrstu sex mánuði þessa árs hefur fjölgað um 15,6% samanborið við sama tímabil í fyrra. Það er veruleg fjölgun sem er að stærstu hluta tilkomin vegna fjölgunar skiptifarþega sem er í takt við spár Isavia. Metfjöldi farþega hefur farið um Keflavíkurflugvöll nú í lok sumars. Sú fjölgun farþega sem hefur orðið hefur tryggt okkur það að aldrei áður hefur verið flogið til jafnmargra áfangastaða frá Íslandi, hvort sem það er í Evrópu eða Norður-Ameríku.“