Isavia hefur hlotið gullmerki jafnlaunaúttektar PwC. Vottunin staðfestir að launajafnrétti er hjá Isavia og munur innan við 3,5% á milli kynja. Niðurstaðan er í takt við jafnréttisáætlun félagsins sem hefur það að markmiði að nýta hæfni, krafta og kunnáttu starfsmanna til fulls án þess að kynbundin mismunun eigi sér stað. Isavia hefur lagt mikla áherslu á jöfn laun kvenna og karla. Þetta kemur fram í frétt á vef Isavia.

Jafnlaunaúttekt PwC greinir kynbundinn launamun innan fyrirtækja þegar tekið hefur verið tillit til annarra þátta sem hafa áhrif á laun, s.s. menntunar, starfsaldurs, starfaflokks og vinnustunda. Þannig veitir hún upplýsingar um raunverulegan launamun kynjanna hjá fyrirtækinu.

Björn Óli Hauksson forstjóri Isavia, segir fyrirtækið mjög stolt af því hafa fengið gullmerki PwC of það sýni að áherslur þeirra hvað varðar launajafnrétti hafi skilað sér. Hann segist vona að þessi vottun verði hvatning til annara fyrirtækja um að fylgja á eftir.