Rekstrarafkoma Isavia fyrir fjármagnsliði og skatta á fyrri helmingi ársins 2015 var jákvæð um 1.247 milljónir króna og jókst um ríflega 20% á milli ára. Rekstrartekjur námu 11.454 milljónum króna sem er 1.526 milljóna króna aukning samanborið við sama tímabil á síðasta ári eða ríflega 13%. Heildarafkoma tímabilsins var jákvæð um 540 milljónir króna samanborið við 836 milljónir króna á sama tímabili á síðasta ári. Þessa lækkun má að fullu rekja til gengisáhrifa af erlendum fjáreignum og skuldum segir í tilkynningu frá Isavia .

„Isavia samstæðan samanstendur af rekstri Keflavíkurflugvallar, Fríhafnarinnar, innanlandsflugvallakerfis og starfsemi í flugleiðsöguþjónustu. Rekstrarafkoma allra þessara þátta var betri en áætlanir félagsins gerðu ráð fyrir og má rekja þann árangur m.a. til aukinnar flugumferðar og fjölgunar farþega sem fara um flugvelli landsins,“ segir Björn Óli Hauksson forstjóri Isavia.

Á fyrstu sex mánuðum ársins fóru ríflega tvær milljónir farþega um Keflavíkurflugvöll sem er um 25% aukning frá sama tímabili í fyrra. Þetta er sami fjöldi og fór um flugvöllinn allt árið 2010 þegar Isavia var stofnað. Gert er ráð fyrir því að fjöldi farþega árið 2015 verði um 4,8 milljónir talsins og áætlanir félagsins gera ráð fyrir áframhaldandi vexti á næsta ári.