Isavia hefur sagt upp 101 starfsmanni, auk þess sem 37 starfsmönnum hefur verið boðið að halda áfram störfum í lægra starfshlutfalli. Þetta herma heimildir Vísis .

Í frétt Vísis segir að forstjóri Isavia hafi boðað starfsmenn á fjarfund síðdegis til að fara yfir stöðu mála.

Umferð um Keflavíkurflugvöll hefur, líkt og á öðrum flugvöllum víða um heim, dregist verulega saman undanfarin misseri vegna COVID-19.

Uppfært 15:02:

Rétt í þessu var Isavia að senda frá sér yfirlýsingu þar sem staðfest er að 101 starfsmanni hafi verið sagt upp, auk þess sem 37 starfsmönnum hafi verið boðið áframhaldandi starf í minnkuðu starfshlutfalli til framtíðar. Þessu til viðbótar verði sumarráðningum fækkað verulega.

„Við komumst því miður ekki hjá því að grípa til uppsagna, en þær ná eingöngu til starfa á sviðum þar sem verkefnum fækkar í óákveðinn tíma," segir Sveinbjörn Indriðason, forstjóri Isavia, í tilkynningunni. „Við teljum hins vegar á þessari stundu mikilvægt að svara ákalli stjórnvalda um að þau fyrirtæki, sem það geti, standi vörð um störfin í landinu. Við erum í þeirri stöðu að lausafjárstaðan okkar er betri en hún hefur nokkru sinni verið þannig að okkar fyrstu viðbrögð taka mið af því."

„Áhrifin af samdrættinum hafa mest áhrif á framlínustörf okkar á Keflavíkurflugvelli, m.a. í flugvernd, farþegaþjónustu og bílastæðaþjónustu. Að öðru leiti þá bíða okkar fjöldi verkefna sem snúa m.a. að því að byggja upp innviði félagsins," segir Sveinbjörn. „Við þurfum þó að vera meðvituð um það að óvissan næstu mánuði er veruleg og við munum endurskoða stöðuna með reglubundnum hætti. Við þurfum með öllum ráðum að tryggja að aðgangur félagsins að lausu fé dugi þar til hjólin fara að snúast á ný. Við þökkum öllu því góða fólki sem nú er að hverfa frá fyrirtækinu fyrir þeirra störf og óskum þeim jafnframt velfarnaðar."

„Móðurfélag Isavia ásamt dótturfélögunum Isavia Innanlands og Isavia ANS munu að svo stöddu ekki nýta sér úrræði stjórnvalda sem snúa að greiðslu atvinnubóta samhliða minnkuðu starfshlutfalli vegna tímabundins samdráttar. Þær uppsagnir sem ráðist er í núna eru til að bregðast við minnkandi umsvifum til langs tíma en úrræði stjórnvalda eru fyrst og fremst til að bregðast við skammtímaáhrifum faraldursins. Fríhöfnin mun nýta úrræði stjórnvalda sem gerir félaginu kleift að ráðast ekki í uppsagnir á fastráðnum starfsmönnum sínum,“ segir í niðurlagi tilkynningar Isavia.