Isavia skoðar nú hvernig það muni bregðast við úrskurði áfrýjunarnefnd samkeppnismála um að bráðabirgðaákvörðun Samkeppniseftirlitsins um gjaldtöku á ytri hópbifreiðastæðum við Keflavíkurflugvöll verði áfram í gildi. Isavia hefur ekki rukkað fyrir ytri rútustæðin 17. júlí síðastliðinn þegar bráðabirgðaákvörðuninni var tekin.

Isavia bendir þó að Samkeppniseftirlitið hafi á seinni stigum málsins lýst yfir að Isavia sé skylt að halda gjaldtöku áfram með breyttu verðlagi og áfrýjunarnefndin hafi tekið undir það í sínum úrskurði. Því sé ekki deilt um hvort Isavia sé heimilt að rukka hópferðafyrirtæki sem sinna akstri til og frá flugvellinum heldur hvert gjaldið eigi að vera og hvaða forsendur liggja til grundvallar gjaldinu.

„Þessi niðurstaða áfrýjunarnefndar samkeppnismála er nú til skoðunar hjá Isavia og út frá þeirri athugun verður tekin ákvörðun um næstu skref,“ segir Hlynur Sigurðsson, framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Isavia. „Það er markmið félagsins að tryggja jafnan samkeppnisgrundvöll fyrir öll þau fyrirtæki sem bjóða upp á samgöngur til og frá Keflavíkurflugvelli og verður það leiðarljós okkar í þeirri vinnu sem nú er fram undan. Við munum því una þessari niðurstöðu áfrýjunarnefndarinnar og vinna að því að ná sátt á meðan Samkeppniseftirlitið lýkur sinni málsmeðferð vegna gjaldtökunnar.“