Ísfélag Vestmannaeyja hefur skrifað undir viljayfirlýsingu um sölu á fjölveiðiskipinu Þorsteini ÞH og uppsjávarfrystiskipinu Guðmundi VE úr landi. Í flota útgerðarinnar verða eftir fjögur skip.

Fram kemur í tilkynningu að fyrirhugað er að félag í eigu Royal Greenland A/S, Ísfélags Vestmannaeyja og annarra aðila eignist og geri út skipin.

Royal Greenland er elsta og þekktasta sjávarútvegsfyrirtæki Grænlands. Skipin verða gerð út á Grænlandsmið eftir að þau hafa verið afhent nýjum eiganda síðar á árinu. Ísfélag Vestmannaeyja hf. er elsta starfandi hlutafélag á landinu, stofnað 1. desember árið 1901. Félagið er burðarás í atvinnulífi í Vestmannaeyjum og á Þórshöfn.