Í nýrri skýrslu, sem RSE (Rannsóknarmiðstöð um samfélags- og efnahagsmál) sendir frá sér í dag, eru birtar niðurstöður alþjóðlegrar samanburðarrannsóknar á efnahagslegu frelsi í heiminum.

Þar kemur fram að Ísland er í 12. sæti á lista 141 lands sem rannsóknin nær til.

Íslands fellur því niður um eitt sæti en Ísland var í 11. sæti í fyrra en deildi 9. sæti með Lúxemborg fyrir tveimur árum.

Í tilkynningu frá RSE segir að góð staða Íslands helgast einkum af sterkum lagalegum og pólitískum innviðum, ríkri vernd eignarréttar og ekki mjög íþyngjandi regluverki í viðskiptaumhverfi fyrirtækja og á vinnumarkaði sé borið saman við önnur lönd. Skortur á aðgangi að traustum gjaldmiðli, of mikil umsvif hins opinbera og takmarkanir í alþjóðaviðskiptum draga Íslendinga niður í samanburðinum.

Þá kemur fram að mest efnahagslegt frelsi ríkir í Hong Kong samkvæmt skýrslunni, þar á eftir kemur Singapúr, svo Nýja Sjáland og Sviss.

Með sambærilega einkunn í sætum 5-9 eru svo Bretland, Chile, Kanada, Ástralía og Bandaríkin. Írar eru í 10. og Eistlendingar í 11.

Íslendingar sitja í 12. sæti sem fyrr segir en Danir og Finnar eru skammt undan í 13. og 14. sæti. Af öðrum Norðurlandaþjóðum er það að segja að Norðmenn sitja í 23. sæti, en Svíar í því 33.

Þegar litið er til stærstu hagkerfanna eru helstu niðurstöður: Þýskaland er í 17. sæti, Japan í 27. sæti, Frakkland í 45. sæti, Ítalía í 49. sæti, Mexíkó í 58. sæti, Indland í 77. sæti, Kína í 93. sæti, Brasilía í 96. sæti og Rússland í 101. sæti.

Botn listans verma svo Myanmar, Angóla og Zimbabwe.

Hornsteinar efnahagslegs frelsis

Hin árlega ritrýnda rannsókn byggir á 42 ólíkum þáttum, sem mynda hina svonefndu frelsisvísitölu, þar sem löndum er raðað eftir því í hvaða mæli þau fylgja stefnu sem leiðir til efnahagslegs frelsis.

Hornsteinar efnahagslegs frelsis eru samkvæmt skýrslunni valfrelsi einstaklinga, viðskiptafrelsi, samkeppnisfrelsi, sterkir lagalegir innviðir, aðgangur að traustum gjaldmiðli og vernd eignarréttar.

Einkunnir Íslands í lykilflokkum eru eftirfarandi: (á skalanum 1-10 þar sem hærri tala bendir til meira efnhagslegs frelsis.)

Umfang hins opinbera: Einkunnin hækkar í 6,94 úr 6,91 frá fyrra ári. Ísland er í 47. sæti í þessum flokki.

Lagaumhverfi og vernd eignarréttar: Einkunnin lækkar í 8,92 úr 9,36 frá fyrra ári. Ísland situr í 5. Sæti í þessum flokki.

Aðgangur að traustum gjaldmiðli: Einkunnin lækkar úr 8,75 í 8,61 frá fyrra ári. Ísland situr í 61. sæti í þessum flokki.

Frelsi til alþjóðaviðskipta: Einkunnin hækkar í 5,90 úr 5,73. Ísland situr í 108. sæti í þessum málaflokki.

Reglubyrði: Einkunnin hækkar úr 8,38 í 8,45 frá fyrra ári. Ísland situr í 5. sæti í þessum flokki.

Í tilkynningu RSE kemur fram að þegar staða Íslands er metin og reynt að leggja dóm á hvar umbóta er þörf, verður annars vegar að líta til einkunna og hins vegar til alþjóðlegs samanburðar. Lágar einkunnir benda til mikilla takmarkana á efnahagslegt frelsi, sem ástæða er til að draga úr.

„Slæm útkoma í alþjóðlegum samanburði þar sem einkunnir eru samt ekki ýkja lágar bendir til þess unnt sé að gera betur,“ segir í tilkkynningunni.

Þá er tekið fram að hafa verður í huga að um er að ræða samanburðarhæf gögn svo ekki er um allra nýjustu upplýsingar að ræða. Nýjustu samanburðarhæfu gögnin eru frá árinu 2006 og er miðað við þau.

„Þannig má gera ráð fyrir að staða Íslands að því er snertir aðgang að traustum gjaldmiðli hafi versnað verulega á árunum 2007 og 2008, vegna óstöðugleika krónunnar og hárrar verðbólgu,“ segir í tilkynningu RSE.

„Það er einna brýnast fyrir Íslendinga að ráðast í umbætur á sviði alþjóðaviðskipta ef marka má niðurstöður skýrslunnar. Hér vega tollar, vörugjöld og önnur innflutningshöft nokkuð, en einnig takmarkanir á erlendum fjárfestingum hér á landi. Leiðir til að efla utanríkisviðskipti sem hlutfall af landsframleiðslu myndu ennfremur bæta stöðu Íslands í alþjóðlegum samanburði, en það sem meira er um vert, bæta hag landsmanna.“

Þá segir ennfremur:

„Landið er enn of lokað. Þá eru umsvif hins opinbera töluvert áhyggjuefni og hlutur opinberra aðila í landsframleiðslunni hefur ekki dregist saman frá árinu 2006. Í þessum tveimur flokkum er einkunn Íslendinga lág. Eins og áður er getið eru standa Íslendingar illa í alþjóðlegum samanburði að því er snertir aðgang að traustum gjaldmiðli. Enda þótt að einkunnin sé ekki lág, er svigrúm til umbóta. Líklegt verður að teljast að staðan hafi nokkuð versnað að þessu leyti á síðustu tveimur árum, eins og áður er nefnt.

Sjá nánar á vef RSE.