Samkvæmt fyrstu bráðabirgðatölum fyrir árið 2014 var magn vergrar landsframleiðslu á íbúa á Íslandi 21% yfir meðaltali Evrópusambandsríkjanna 28 árið 2014. Þetta kemur fram í nýrri frétt Hagstofu Íslands.

Þar segir að í samanburði 37 Evrópuríkja (Evrópusambandsríkjanna auk Íslands, Noregs, Sviss,Tyrklands, Svartfjallalands, Serbíu, Bosníu-Hersegóvínu, Albaníu og Makedóníu) hafi Ísland verið tíunda í röðinni yfir verga landsframleiðslu á íbúa árið 2014.

Magn vergrar landsframleiðslu á íbúa var mest í Lúxemborg og var 163% yfir meðaltali Evrópusambandsríkjanna en þar á eftir kom Noregur þar sem verg landsframleiðsla á íbúa var 79% yfir meðaltalinu. Í frétt Hagstofunnar segir að Lúxemborg skeri sig úr hópnum þar sem líta verði til þess að fjöldi fólks vinni og versli í landinu og leggi til landsframleiðslunnar, en búi utan landsins og teljist því ekki til íbúafjöldans.

Magn einstaklingsbundinnar neyslu á mann á Íslandi var 18% yfir meðaltali Evrópusambandsríkjanna samkvæmt fyrstu bráðabirgðaniðurstöðum fyrir árið 2014. Þar var Ísland sjötta í röð landanna 37 en Lúxemborg í fyrsta sæti.