Ísland verður fjarlægt af gráa lista FATF alþjóðlegs fjármálaaðgerðahóps ríkja um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Þetta var ákveðið á aðalfundi samtakanna í dag samkvæmt tilkynningu frá dómsmálaráðuneytinu.

Á gráa listanum eru ríki sem talin eru vera með ófullnægjandi varnir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Ísland var sett á listann í október á síðasta ári.

Á vef dómsmálaráðuneytisins segir að ákvörðunin hafi verið tekin í kjölfar vettvangsathugunar hér á landi í lok september. Þar var staðfest var af hálfu sérfræðinga á vegum FATF að lokið hefði verið með fullnægjandi hætti við þær aðgerðir sem Íslandi var gert að grípa til í því skyni að komast af umræddum lista. Þá hafi verið staðreynt að til staðar væri ríkur pólitískur vilji hjá íslenskum stjórnvöldum til að halda áfram vinnu við að styrkja varnir Íslands gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka.

„Undanfarin tvö ár hefur verið lyft grettistaki í vörnum gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Ég er þakklát fyrir það mikla og óeigingjarna starf sem hefur verið innt af hendi af hálfu fjölmargra aðila og einstakra stjórnvalda hér á landi til þess að þessi niðurstaða mætti líta dagsins ljós. Eru þeim öllum færðar þakkir og hamingjuóskir í tilefni áfangans,“ er haft eftir Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur dómsmálaráðherra á vef ráðuneytisins.

Í samantekt Seðlabankans á áhrifum af veru Íslands á listanum frá því í janúar kom fram að upp hafi komið einstök tilvik þar sem greiðslur hafi tafist og örfá dæmi væru þess að að erlendir bankar hafi hafnað því að hafa milligöngu um greiðslu til og frá landinu. Þá hafi verið óskað frekari skýringa eða upplýsinga frá eftirlitsskyldum aðilum í tengslum við aukna áreiðanleikakönnun.