Verðlag á Íslandi var 84% hærra en að meðaltali í aðildarríkjum ESB árið 2017. Ferðamaðurinn greiðir því næstum tvöfalt hærra verð hér en að meðaltali innan ESB. Ísland er um þessar mundir dýrasta land Evrópu og að öllum líkindum einn dýrasti áfangastaður heims fyrir ferðamenn. Greint er frá þessu í fréttatilkynningu frá Íslandsbanka.

Þar segir jafnframt að verðlag á algengum vörum og þjónustu sem ferðamenn sækist í hafi hækkað langt umfram verðlag í Evrópu undanfarinn áratug og megi sem dæmi nefna að verð áfengra drykkja sé í dag hátt í þrefalt hærra en að meðaltali í ESB.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýrri skýrslu um ferðaþjónustuna á Íslandi sem kynnt verður á fundi á hótel Hilton Nordica fimmtudaginn 2. maí kl. 08:30.