Evrópusambandið tekur mið af vilja íslenskra stjórnvalda sem fram hefur komið í bréfi utanríkisráðherra í mars síðastliðnum um að ríkisstjórnin hafi ekki í hyggju að taka upp aðildarviðræður. Þetta kemur fram í bréfi Edgars Rinkevics, utanríkisráðherra Lettlands og formanns ráðherraráðs ESB, til Gunnars Braga Sveinsson utanríkisráðherra. Litið er svo á að Ísland sé ekki lengur umsóknarríki að ESB. Þetta kemur fram í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu.

„Bréf lettneska utanríkisráðherrans staðfestir niðurstöðu fundar ráðherraráðs ESB í liðinni viku. Það hefur legið ljóst fyrir að ríkisstjórnin lítur svo á að Ísland sé ekki umsóknarríki að ESB og í bréfi mínu til formanns ráðherraráðs ESB var þetta áréttað og sambandið beðið um að laga verklag sitt að því. Ekki hefur verið ástæða til að ætla að annað væri uppi á teningnum. Með efni þessa svarbréfs höfum við fengið skýrleika í málið og er það fagnaðarefni,“ segir utanríkisráðherra sem segist gera ráð fyrir að Ísland verði nú tekið út af lista umsóknarríkja eins og óskað hefði verið eftir. „Samstarf okkar við ESB á vettvangi Evrópska efnahagssvæðisins og annarra mála er afar mikið og farsælt og það er mikilvægt að tíma okkar og kröftum verði varið í að efla það samstarf enn frekar á næstunni,“ segir Gunnar Bragi Sveinsson.