Ísland Express ehf., félag Pálma Haraldssonar, hefur skipt um nafn og heitir nú IEMI ehf. Ennfremur hefur starfsemi félagsins verið breytt úr því að vera „farþegaflutningar með áætlunarflugi“ yfir í „leigu atvinnuhúsnæðis“.

Ísland Express er sem kunnugt er rekstrarfélag Iceland Express, en Wow air, félag Skúla Mogensen, hefur keypt bróðurpart rekstrar Iceland Express.

Við breytingarnar á félagi Pálma ganga þeir Einar Þór Sverrisson og Sigurður Guðjónsson úr stjórn félagsins. Framkvæmdastjóri þess, Skarphéðinn Berg Steinarsson, situr nú í stjórn ásamt Pálma.