Ísland fær lán frá Svíþjóð og hinum norrænu seðlabönkunum.

Hvenær og hve mikið er hins vegar ekki vitað hefur sænska viðskiptablaðið Dagens Industri eftir Fredrik Reinfeldt, forsætisráðherra Svía, á blaðamannafundi í Helsingfors í gærkvöldi.

,,Ég get ekkert sagt nákvæmlega um útfærsluna,” sagði Reinfeldt á fundinum.

Einnig var haft eftir honum að forsætisráðherrarnir myndu setja upp vinnuhóp og þeir vonuðst til þess að vinna gæti hafist sem fyrst.