Undirritaður hefur verið nýr samningur milli Íslands og Sviss til að komast hjá tvísköttun á tekjur og söluhagnað. Einar Gunnarsson, ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins, undirritaði samninginn fyrir hönd Íslands en Fabrice Filliez fyrir hönd svissneska fjármálaráðuneytisins.

Fram kemur í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu að í nýjum samningi felst fyrst og fremst aðlögun að gildandi stefnu ríkjanna í tvísköttunarmálum og þeim breytingum sem orðið hafa á tvísköttunarfyrirmynd OECD frá því að núgildandi samningur var undirritaður 1988. Aðrar breytingar í hinum nýja samningi eru fyrst og fremst þær að tekinn er upp afdráttarskattur á tilteknar tegundir þóknana sem ekki er að finna i eldri samningi. Í öðru lagi eru með samningnum tekin af öll tvímæli um að lífeyrissjóðir njóti ívilnana nýja samningsins. Í þriðja lagi var sett inn ákvæði sem heimilar skattlagningu eftirlauna í greiðsluríki.

Á næstu mánuðum munu stjórnvöld vinna að fullgildingu samningsins í báðum samningsríkjum. Vonast er til að samningurinn geti komið til framkvæmda 1. janúar 2016, að því er segir í tilkynningunni.