Í nýrri skýrslu hagdeildar ASÍ þar sem borin eru saman lífskjör á Norðurlöndunum kemur fram að Ísland hefur heltst úr lestinni á mörgum sviðum frá 2006 þegar efnahagsleg lífskjör eru borin saman við Danmörku, Noreg og Svíþjóð. Íslendingar vinna að jafnaði lengri vinnuviku til að halda uppi lífskjörum sambærilegum við það sem gerist annars staðar á Norðurlöndum og munurinn því meiri ef tekið er tillit til vinnutíma. Verulegur samdráttur fjárfestingar er áhyggjuefni en fjárfesting hefur ekki náð sér á strik eftir hrun og er enn langt undir sögulegu meðaltali. Mikil skuldsetning hins opinbera er ein stærsta ógnin við lífskjör Íslendinga en mikill samdráttur samneyslunnar hefur komið hart niður á heilbrigðis- og menntakerfinu.

Í skýrslunni segir að skattkerfinu hér á landi og auknar tilfærslur hafa orðið til þess að hlífa þeim tekjulægstu á Íslandi í samanburði við hin Norðurlöndin. Aftur á móti hefur staða hjóna og sambýlisfólks með börn versnað miðað við samanburðarlöndin frá 2006.

Dregur úr hvata til vinnuframlags

Íslensk heimili mættu kaupmáttarrýrnun og skattahækkunum með aðlögun neyslunnar. Til að halda uppi neyslu á nauðsynjum hafa þau dregið úr munaði og frestað endurnýjun á varanlegum neysluvörum. Af Norðurlöndunum er skattbyrði lágtekna lægst á Íslandi, á meðan skattbyrði meðaltekna er sambærileg við það sem þekkist Noregi en hærri en í Svíþjóð. Skattbyrði hátekna er hins vegar lægri hér á landi en annars staðar á Norðurlöndunum.

Af Norðurlöndunum er Ísland eina landið þar sem launamenn hækka um skattþrep undir meðaltekjum. Það í bland við tekjutengingar dregur úr hvata til aukins vinnuframlags hjá hinum tekjulægri. Þrátt fyrir breytingar á skattkerfinu, bera launþegar í flestum tilfellum lægri skattbyrði á Íslandi en fyrir laun í sömu störfum í nágrannalöndunum, að því er segir í skýrslunni.