Utanríkisráðuneytið hefur gripið til lagalegra aðgerða gegn bresku verslunarkeðjunni Iceland Foods, sem hefur um árabil beitt sér gegn því að íslensk fyrirtæki geti auðkennt sig með upprunalandinu við markaðssetningu í Evrópu á vörum sínum og þjónustu. Auk ráðuneytisins hafa Íslandsstofa og Samtök atvinnulífsins undirbúið málaferlin.  Þetta kemur fram í frétt á síðu Utanríkisráðuneytisins.

Breska fyrirtækið er með einkarétt á nafninu ICELAND í löndum Evrópusambandsins, samkvæmt ákvörðun stofnunar ESB sem annast vörumerkjaskráningar. „Íslensk stjórnvöld krefjast þess að einkaleyfið verði ógilt, enda sé það of víðtækt og komi í veg fyrir að íslenskir aðilar geti vísað til landfræðilegs uppruna síns

Verslunarkeðjan hefur ítrekað kvartað til evrópskra yfirvalda yfir íslenskum aðilum sem nota orðið ICELAND sem hluta af vörumerki sínu. Aðgerðir verslunarkeðjunnar hafa m.a. bitnað á markaðsátakinu Inspired by Iceland, en undir þeim hatti hefur Ísland verið markaðssett sem spennandi áfangastaður fyrir ferðamenn.,“ segir í frétt ráðuneytisins.

Haft er eftir Lilju Alfreðsdóttur, utanríkisráðherra, að það væri bæði sanngjarnt og eðlilegt að íslenskir aðilar geti vísað til upprunalandsins ef þeir kjósa svo í markaðsstarfi sínu erlendis.