Hagstofa Íslands hefur í dag gefið út enskan bækling, Iceland in figures 2011 , þar sem nálgast má ýmsar lykiltölur um land og þjóð á handhægan hátt. Þetta er sextándi árgangur bæklingsins en hann er sniðinn að ferðaþjónustunni og hefur átt miklum vinsældum að fagna meðal leiðsögumanna af því er fram kemur á vef Hagstofu Íslands.

Bæklingurinn skipist í 18 kafla og í honum eru yfir 50 töflur og 15 myndir. Efni hans er byggt á Landshögum , árbók Hagstofunnar, og geymir hann m.a. upplýsingar um veðráttu, umhverfi, mannfjölda, laun, tekjur, vinnumarkað, atvinnuvegi, utanríkisverslun, samgöngur, upplýsingatækni, ferðaþjónustu, verðlag, neyslu, þjóðarbúskap, heilbrigðismál, félagsmál, skóla, menningu, kosningar og fleira.

Bæklinginn má skoða hér. Hann má einnig fá í afgreiðslu Hagstofu Íslands og kostar 350 krónur.