Ísland er það land í heiminum þar sem besta blanda efnahagslegra tækifæra og lífsgæða fyrirfinnst. Þetta kemur fram í nýrri rannsókn frá háskólanum í Long Island í Bandaríkjunum. Þetta kemur fram hjá IceNews fréttaveitunni. Zimbabwe situr í botnsætinu, en alls voru 120 lönd tekin til skoðunar í rannsókninni.
Þau atriði sem voru skoðuð í rannsókninni voru efnahagslegt frelsi, viðskiptaumhverfi, stig hnattvæðingar, samkeppnishæfni á grundvelli rannsókna og þróunar, umhverfisleg sjálfbærni, menntastig og heilbrigðisþjónusta hins opinbera, að því er kemur fram í máli Panos Mourdoukoutas, professors í hagfræði sem framkvæmdi rannsóknina.
Á eftir Íslandi situr Kanada í öðru sæti og Svíþjóð í hinu þriðja. Í kjölfarið koma síðan Sviss, Finnland, Ástralía, Noregur, Danmörk, Írland og Singapúr.
Meðal þeirra landa sem komu verst út úr rannsókninni voru Nígería, Kongó, Malaví, Mósambík, Gínea, Benín, Burkina Faso, Tsjad, Eþíópía og loks Zimbabwe á botninum.
Þau lönd sem sitja efst á listanum „leyfa hinum opnu og frjálsu mörkuðum að gera það sem þeir gera best – leysa úr læðingi sköpunargleði fólksins svo það geti bætt lífsgæði sín,” segir prófessorinn í umsögn um rannsóknina.
„Með fáum undantekningum, eru þau lönd sem standa sig best með blönduð hagkerfi sem styðjast við opna markaði og traust stofnanaumhverfi.“
Í rannsókninni er stuðst við gögn frá Sameinuðu Þjóðunum, World Economic Forum, Alþjóðabankanum, Heritage Foundation, Wall Street Journal og öðrum bandarískum háskólum á borð við Yale.
Hægt er að nálgast rannsóknina hér .